Skipulag náms, kennslu og námsmats í hæfnimiðuðu skólastarfi
Í þessu námskeiði er farið yfir stuðningsefni um skipulag náms, kennslu og námsmats sem birt er á vefnum adalnamskra.is. Námskeiðinu er ætlað að styðja við starfsþróun kennara og skólastjórnenda og ígrundun þeirra um skipulag og framkvæmd gæðakennslu. Fjallað er um hugmyndafræðina um hæfnimiðað skólastarf og lykilhugtök eru útskýrð. Leiðbeiningar eru gefnar um þá umgjörð um störf kennara sem skólar þurfa að setja í skólanámskrá og að lokum er skipulagi náms, kennslu og námsmats í þremur skrefum lýst á ítarlegan hátt og með tilvísunum í dæmi og hagnýt fylgiskjöl sem nálgast má á vef aðalnámskrár.
Course•By Miðstöð menntunar og skólaþjónustu